Traust, metnaður og sveigjanleiki
TM Software leggur metnað í að bjóða upp á bestu mögulegu vefhýsingarþjónustu sem völ er á. Notendur sem krefjast hraðvirkrar og öruggrar vefþjónustu velja rétt með því að velja vefhýsingu hjá TM Software.

Alhliða vefhýsing
Í vefhýsingu TM Software færðu stuðning við alla helstu staðla sem eru í notkun á Internetinu í dag, og getum við sniðið þjónustuna að þér og þínum rekstri, hvort sem um er að ræða vefhýsingu á Windows- og/eða Linux þjónum.

Tvöföld tenging - Dual Home
Vefþjónar TM Software eru tengdir við umheiminn með tvöföldum tengingum, við Símann og Vodafone, sem er einsdæmi á Íslandi. Vefumhverfið sjálft og tengingar við umheiminn eru einnig á nýjum tvöföldum búnaði svo að vefþjónustur TM Software hafa gríðarlega góðan uppitíma og mikið öryggi.

Veflausnir
TM Software hefur einnig verið leiðandi í þróun og viðhaldi lifandi veflausna undir vörumerkinu Origo sem mörg af stærstu fyrirtækjum landsins reiða sig á. Með þeim veflausnum er hægt að halda úti lifandi vefum á einfaldan og skilvirkan máta.

Hafðu samband
Allar nánari upplýsingar fást hjá sölu- og viðskiptafulltrúum í síma 545 3000, í tölvupósti info@tm-software.is og á vefsíðu TM Software, www.tm-software.is
TMS vefhýsingar innifela:
  • Hýsing í DNS þjónum
  • Linux og Windows vefþjónar
  • ASP.NET
  • CGI / Perl / PHP
  • Tengingar við MS SQL / MySQL
  • Undirlén
  • FTP / Frontpage aðgengi
  • SSL dulkóðunarmöguleikar
  • Allar helstu vefviðbætur s.s.
    • ASPQmail
    • ASPUpload
    • ASPTear
    • ASPJpeg
  • Dagleg afritunartaka
  • Hámarks uppitími
  • Fullkomin eldveggjavörn
  • WebTrends veftölfræði
  • og margt margt fleira
TM Software - Urðarhvarf 6, 203 Kópavogur, Ísland - Sími: 545 3000 Fax: 545 3001 - info (hjá) tm-software.is - © TM Software 2007 - Kort